Kinan Kadoni, sem búsettur hefur verið hér á landi um nokkurra ára skeið, lenti í miður skemmtilegri reynslu í verslun við Ásvallagötu í gær að loknum vinnudegi.
Kinan greindi frá atvikinu í færslu á Facebook sem hann veitti Hringbraut góðfúslegt leyfi til að birta.
Í færslu sinni segir hann að í versluninni hafi verið maður, viðskiptavinur sennilega á fertugsaldri, sem hafi horft ákveðnum augum á Kinan þegar hann gekk inn. Maðurinn gekk svo að honum og spurði Kinan hvort hann væri múslimi.
Kinan segist hafa svarað spurningunni játandi og gengið svo í burtu frá manninum til að forðast frekari samskipti við hann, enda maðurinn haft óþægilega nærveru og tilgangurinn með samskiptunum augljóslega ekki verið vinalegur. Þar með er ekki öll sagan sögð.
„Hann helti mig og sýndi mér húðflúr sem hann var með á neðri vörinni. Ég sá ekki betur en að þetta væri hakakrossinn,“ segir Kinan og bætir við að maðurinn hafi svo lyft handleggnum líkt og hann væri að heilsa að hætti nasista. Þegar Kinan gekk út úr versluninni segir hann að maðurinn hafi elt hann og gert svo sömu bendingu með handleggnum meðan hann gekk burt.
„Ég hringdi strax í lögregluna um leið og ég kom út úr versluninni. Lögreglan bað mig að hinkra þar til hún kæmi,“ segir hann og bætir við að tveir lögregluþjónar hafi komið skömmu síðar. „Þeir voru mjög kurteisir og hjálplegir og spurðu mig strax að því hvernig ég hefði það áður en þeir báðu mig að lýsa því sem gerðist.“
Kinan segist hafa gefið lögreglunni upplýsingar um manninn og hann bíði nú eftir upplýsingum frá lögreglunni vegna málsins.
Kinan kemur frá Idlib-héraði í norðvesturhluta Sýrlands en hann hefur búið hér á landi í nokkur ár og fékk íslenskan ríkisborgararétt árið 2018. Hann var í ítarlegu viðtali við Fréttablaðið í mars síðastliðnum þar sem hann ræddi meðal annars um stöðu mála í Sýrlandi.