Kristinn H. Gunnarsson, fyrrum alþingismaður og núverandi ritstjóri blaðsins Bæjarins besta á Vestfjörðum lætur Ríkisútvarpið heyra það á miðli sínum í dag.
Kristinn, betur þekktur sem Kiddi sleggja, ásakar Silfrið um staðreyndavillur í umfjöllun sinni um umdeilda bók gegn laxeldi.
„Í Silfrinu á Ríkisútvarpinu í gær voru höfundar umdeildrar bókar um laxeldi og kynntu efni hennar. Ríkisútvarpið kynnir þau á eftirfarandi hátt:
„Þau hafa bæði áratuga reynslu úr blaðamennsku. Collins hefur unnið fyrir fjölmarga miðla og sérhæfir sig í vísindum og umhverfismálum. Frantz hefur til að mynda verið blaðamaður og ritstjóri hjá New York Times, Los Angeles, Washington Post og Chicago Tribune. Þau Collins og Frantz eru nýbúin að gefa út bók um uppgang laxeldis í sjó og ræddu innihald hennar við Egil Helgason.“
Það fór ekki á milli mála að boðskapur þeirra er að banna eigi sjókvíaeldi ekki bara í Bandaríkjunum heldur um allan heim,“ skrifar Kristinn á Bb.is
„Það kom hins vegar ekki fram í þættinum að bókin og grein sem höfundar skrifuðu í bandaríska tímaritið Time Magazine til þess að fylgja bókinni eftir eru mjög umdeild og hafa höfundar verið sakaðir um alvarlegar staðreyndavillur. Það er mjög sérstakt að stjórnandi þáttarins skuli ekki hafa gert grein fyrir þessu og spurt höfunda um svör þeirra við gagnrýninni. Í umræðu um mál sem þetta er nauðsynlegt að draga fram eftir föngum staðreyndir og einnig hvaða atriði eru umdeild og kalla eftir rökstuðningi frá báðum hliðum um þau atriði. Það var ekki gert. Egill hafði engar spurningar til höfunda um efni bókarinnar og gagnrýni sem komið hefur fram,“ skrifar Kristinn.
Hann segir að Egill Helgason og RÚV gerðu umfjöllunina að einhliða málflutningi gegn laxeldi í sjó. Það er alvarlegt mál, að mati Kristins.
„Bókin er reyndar ekki ný af nálinni. Hún kom út í júlí á síðasta ári. Salmon Wars: The Dark Underbelly of Our Favorite Fish heitir bókin. Sterk viðbrögð hafa komið fram við efni bókarinnar og greininni í kjölfarið. Fiskeldi er víðar umdeilt en á Íslandi og það á við um Bandaríkin og Kanada.“
„Samtök eldisframleiðenda í Kanada skrifuðu þegar grein til varnar eldinu og drögu fram 10 ásakanir og mistúlkanir sem fram koma í bókinni sem þau segja að séu rangar. Er það þeirra dómur að í bókinni sé lítið annað en endurtekning á villandi fullyrðingum og úreltum uppýsingum,“ skrifar Kristinn.
„Sambærileg samtök í Bandaríkjunum eru National Aquaculture Association og forseti þeirra Sebastian Belle gagnrýnir einnig efni bókarinnar og greinarinnar í Time Magazine fyrir rangfærslur. Hann segir reyndar að fram fari áróðursstríð gegn fiskeldi og nefnir til fleiri tilvik þar um.
Þar sem bókin er ekki ný og þegar hafa komið fram viðbrögð við henni var RÚV og Agli Helgasyni í lófa lagið að gera grein fyrir báðum hliðum og leitast við að draga fram helstu efnisatriðin. Það var ekki gert. Það var ekki sagt frá því að framlag höfunda væri umdeilt. Þau voru ekki spurð um svör við framkominni gagnrýni.“
„Það er enn hægt að bæta úr og halda áfram umfjölluninni um bókina og málflutning Franz og Collins. En þá verður Egill Helgason að kynna sér málið og hafa einhverjar forsendur til þess að stjórna umræðunni og það sem er lykilatriðið að fá svör þeirra sem til svara eru fyrir atvinnugreinina,“ skrifar Kristinn.
Hægt er að lesa grein Kristins í heild sinni hér.