„Það kom einn í morgun og keypti bensín fyrir 74 þúsund, og ég held að þetta séu síðustu brúsarnir,“ segir Hulda Jónsdóttir, stöðvarstjóri á bensínstöð N1 í Engihjalla, í samtali við Fréttablaðið.
Óhætt er að segja að verkfall Eflingar hjá starfsmönnum sem sinna olíudreifingu sé þegar farið að hafa áhrif en það hófst klukkan 12. Dæmi eru að bensínstöðvar séu þegar orðnar tómar.
Hulda segir við Fréttablaðið að gert sé ráð fyrir því að eldsneytið tæmist hjá þeim. Smurstöð er einnig á umræddri stöð og því á hún ekki von á því að starfsemin lamist alveg þrátt fyrir verkfall.
Fréttablaðið ræddi við fleiri vegfarendur sem voru að taka eldsneyti rétt áður en verkfall skall á.
Ragnar Bjarnason húsasmiður var til dæmis að fylla á brúsa til að eiga fyrir fyrirtæki sitt en hann þarf að geta komið sér á milli staða.
„Þetta er eini brúsinn sem ég hef fyllt á. Það er bara til að geta haldið starfseminni gangandi,“ segir hann.
Hann kveðst ekki hafa miklar áhyggjur af verkfallinu og að hann hafi trú á því að það leysist áður en þetta fer í algert óefni. „En ég fór hérna fyrst á stöðina hjá Elko og þar var allt orðið tómt. Það er skrítið að sjá.“
Nánar er fjallað um málið á vef Fréttablaðsins en þar er meðal annars rætt við fleiri vegfarendur.