Kerecis metið á allt að 9,5 milljarða

Heildarvirði nýsköpunarfyrirtækisins Kerecis, sem framleiðir sáraumbúðir úr fiskroði, er allt að 9,5 milljarðar króna, miðað við nýleg viðskipti með hluti í því. Kerecis vinnur nú að hlutafjáraukningu og hyggst sækja um 900 milljónir króna með það fyrir augum að styðja við frekari vöxt þess á næstunni. Mbl.is greinir frá.

Mbl.is greinir frá því að tekjur fyrirtækisins hafi aukist mikið á undanförnum árum og gera áætlanir þess ráð fyrir að tekjurnar verði allt að 4,8 milljarða króna á næsta ári. Gangi þessar spár eftir hefur salan áttfaldast frá árinu 2016.

Kerecis hlaut Nýsköpunarfverðlaun Íslands á síðasta ári. Fyrirtækið var stofnað árið 2009 og hóf rekstur árið 2010. Það vinnur að þróun fjölmargra vara sem tengjast húð- og vefjaviðgerðum. Meginstefið í starfssemi fyrirtækisins er hagnýting á náttúrulegum efnum sem styðja við endursköpun húðar og líkamsvefja. Fyrirtækið er með höfuðstöðvar og framleiðslu á Ísafirði en er einnig með skrifstofur í Reykjavík og Arlington í Bandaríkjunum.