Kerecis metið á 15 milljarða króna

Kerecis er metið á 15 milljarða króna um þessar mundir. Þetta kemur fram í þættinum Við­skipti með Jóni G. á Hring­braut en þar ræðir Jón G. Hauks­son við Guð­mund Fer­tram Sigur­jóns­son, for­stjóra Kerecis, en fyrir­tækið hyggst leggja stór­aukið fé í sölu­starf­semi í Banda­ríkjunum og ná þar stærri hlut­deild á sí­stækkandi markaða lækninga­vara.

Kerecis hefur þegar vakið mikla at­hygli lækna vestan­hafs fyrir sáraroðið sem það fram­leiðir en það hefur reynst afar vel við sárum sem gróa illa, t.d. á fót­leggjum fólks sem glímir við sykur­sýki og of­fitu. Þá hefur það skilað árangri við bruna­sárum en fram kemur í þættinum að Kerecis er í eftir­tektar­verðu sam­starfi við banda­rískan herinn varðandi rann­sóknir og þróun.

Að sögn Guð­mundar verður velta Kerecis á þessu ári um 3 milljarðar króna en það er svipuð fjár­hæð og nýtt lán sem fyrir­tækið tryggði sér á dögunum. Lánið hyggst Kerecis nota til að stór­auka sókn sína á Banda­ríkja­markaði og marg­falda veltuna þar - en hann vegur yfir 90% af veltu fyrir­tækisins og fer sí­stækkandi.

Kerecis fékk í síðustu viku viður­kenninguna Vaxtar­sprotann frá Sam­tökum iðnaðarins en veltan fyrir­tækisins jókst um 142 prósent á síðasta ári; sem er 2,4-földun. Það er vel gert.

Guð­mundur og tengdir aðilar eru stærstu hlut­hafar í fyrir­tækinu með sam­tals um þriðjungs hlut – sem metinn er þá á um 5 milljarða króna miðað við verð­matið á fyrir­tækinu í heild.