Þórunn Óðinsdóttir, ráðgjafi og formaður Stjórnvísi, kennir fólki að pressan niður stjórnunarpýramídan, og er ráðgjafi margra fyrirtækja í LEAN; þ.e. að straumlínulaga reksturinn. Hún er gestur Jóns G. og ræða þau stjórnunarverðlaun Stjórnvísi og LEAN-aðferðafræðina í þættinum. Stjórnunverðlaun Stjórnvísi voru veitt í tíunda sinn í síðustu viku. Fjórir stjórnendur voru verðlaunaðir. Hermann Björnsson forstjóri Sjóvá í flokki yfirstjórnenda, Linda Gunnarsdóttir yfirflugstjóri Icelandair og Sigurður Egill Þorvaldsson leiðtogi framleiðsluskipulags Rio Tinto á Íslandi í flokki millistjórnenda og Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir í flokki frumkvöðla.
Kennir fólki að pressa niður pýramídan!
Fleiri fréttir
Nýjast