Óhætt er að segja að færsla leikkonunnar Ilmar Kristjánsdóttur um leshraðapróf sem sonur hennar í 3. bekk gekkst undir á dögunum hafi vakið athygli.
„Þessi leshraðapróf. Getur einhver hjálpað mér að skilja hvers vegna í ósköpunum við erum að leggja áherslu á börnin okkar lesi hratt,“ spyr Ilmur í færslu sinni á Facebook í vikunni.
Í færslunni útskýrir hún að hún sé með strák í 3. bekk sem hefur áhuga á lestri – ennþá að minnsta kosti.
„Hann les mjög vel, þegar hann les upphátt fyrir mig legg ég áherslu á að hann lesi fallega og að hann skilji það sem hann les. En það virðist ekki vera lögð áhersla á það í skólanum, bara að hann lesi hratt. Um daginn kom hann heim úr skólanum og rétti mér blað, ég sá á líkamstjáningunni að hann skammaðist sín. Á blaðinu var helvítis hraðalínuritið -sem hafði farið niður á við, honum hafði farið aftur. Ég snögg reiddist og reif blaðið í tvennt, honum brá en skömmin vék fyrir undrun. Ég reiddist vegna þess að ég hafði verið að hrósa honum fyrir framför í lestrinum deginum áður, hann er nefnilega farinn að lesa með tilfinningu, ég sé að hann kemur sjálfum sér á óvart þegar hann les og ég sé að hann eflist við það. Enda getur það verið mjög valdeflandi að heyra rödd sína hljóma.“
Ilmur rifjar svo upp að þegar dóttir hennar var í 3. bekk hafi íslenskukennarinn hennar stoppað hana úti á götu til að hrósa henni. Nefndi kennarinn að hún læsi fallega og það væri gaman að hlusta á hana.
Jón H Halldórsson kennari segir skrifar hins vegar á Twitter að Ilmur sé á villigötum.
„Geðug kona hún Ilmur og frábær í sínu fagi. En skrif hennar um lesskilningsprófin eru illa ígrunduð. Vona að málið fái almennilega umfjöllun í fjölmiðlum og skrif hennar verði ekki látin nægja. Svona úr því að verið er að gera þeim skil á annað borð,“ skrifar Jón á Twitter.
Geðug kona hún Ilmur og frábær í sínu fagi. En skrif hennar um lesskilningsprófin eru illa ígrunduð. Vona að málið fái almennilega umfjöllun í fjölmiðlum og skrif hennar verði ekki látin nægja. Svona úr því að verið er að gera þeim skil á annað borð. https://t.co/x74qRDAtDN
— Jón H Halldórsson (@jonnikonni) October 17, 2022