Kemur loks góður vegur yfir Kjöl? Veggjöld gætu numið 10-20 þúsund krónum

Vegagerðin telur tímabært að huga að frekari undirbúningi framkvæmda við endurnýjun vegarins yfir Kjöl. Þetta kemur fram í umsögn Vegagerðarinnar við þingsályktunartillögu Njáls Trausta Friðbertssonar, þingmanns Sjálfstæðisflokksins, um endurnýjun vegarins með einkaframkvæmd.

Morgunblaðið greindi fyrst frá þessu í dag.

Kjalvegur liggur um hálendið og tengir saman Suður- og Norðurland. Vegurinn er fólksbílafær á sumrin og yfirleitt einn greiðfærasti hálendisvegur landsins.

Í umsögninni er bent á að í núgildandi samgönguáætlun fyrir árin 2020-2034 séu ekki ráðgerðar framkvæmdir við endurnýjun Kjalvegar. Vegagerðin hafi byggt upp í áföngum hluta vegarins að sunnanverðu að Árbúðum.

Þá er bent á að í landsskipulagi 2015-2026 sé lögð fram stefna um hvernig skuli byggja upp vegi á hálendi íslands og að þar skulu stefnt að vegi sem geti verið opinn 6-8 mánuði á ári.

„Vegagerðin telur það tímabært að huga að frekari undirbúningi framkvæmda og að til þess þurfi að veita fjármagni af samgönguáætlun. Umhverfismat á Kjalvegi í viðkvæmri náttúru hálendisins er mikið verk sem ekki verður framkvæmt svo vel sé nema með sérstakri fjárveitingu á samgönguáætlun.“

Þá segir Vegagerðin að skiptar skoðanir séu um hvernig byggja skuli upp vegi á hálendi Íslands. Þannig hélt Vegagerðin málþing um hálendisvegi í maí síðastliðinum þar sem fulltrúar helstu hagsmunaaðila, sveitarfélaga og opinberra aðila fóru yfir afstöðu sína. í framhaldi af því hyggst Vegagerðin móta stefnu um hvernig skulu byggja slíka vegi til framtíðar.

„Vegagerðin tekur ekki afstöðu til þess hvort um einkaframkvæmd verði að ræða en ítarlegar greiningar þarf við til að meta fýsileika slíkrar framkvæmdar. Miðað við varlegar forsendur um kostnað og mögulega umferðaraukningu þá gæti veggjald þurft að vera á bilinu 10-20.000 kr. til að greiða niður framkvæmdina á 20 árum.“