Kaupa hlut í icelandair fyrir 5,6 milljarða

Bandaríski fjárfestingarsjóðurinn PAR Capital Management hefur komist að samkomulagi um kaup á 11,5 prósent hlut í Icelandair fyrir 5,6 milljarða króna. Samkomulagið er bundið fyrirvara um samþykki hluthafa á fundi sem verður haldinn 24. apríl næstkomandi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Icelandair til Kauphallarinnar og RÚV.is greinir frá.

Í tilkynningunni segir að hlutafjáraukningin muni koma til með að styrkja fjárhagsstöðu félagsins enn frekar og gera því betur kleift að nýta þau vaxtatækifæri sem núverandi aðstæður á flugmarkaði geti falið í sér. 

„Það er enn fremur ánægjulegt að svo stór og öflugur fjárfestir deili trú okkar á framtíðarhorfur félagsins,“ er haft eftir Boga Nils Bogasyni, forstjóra Icelandair Group.

Í frétt RÚV segir að PAR Capital Management sé fjárfestingarsjóður staðsettur í Boston, sem hafi fjóra milljarða dollara í stýringu. Sjóðurinn var stofnaður árið 1990 og leggur áherslu á langtímafjárfestingar í ferðaþjónustu og stafrænum miðlum.