Arnbjörg Sigurðardóttir, dómari við Héraðsdóm Norðurlands eystra, segir tíðindin af lausagöngubanni katta á Akureyri vera sorgleg.
Arnbjörg tjáir sig um tíðindin á Facebook síðu sinni. Þar deilir hún gömlum pistli sínum vegna umræðunnar frá því í júlí í fyrra. Þar bendir hún meðal annars á að kettir hafi búið frjálsir í samfélagi við menn í árþúsundir og á Íslandi frá upphafi byggðar.
Hún segir að bæjarfulltrúar á Akureyri mættu taka kollega sín aí Árborg til fyrirmyndar. En þar var nýverið slíkt bann dregið til baka.