Katrínu nóg boðið: Allt þetta fór í ruslið eftir einfalda máltíð

Katrín Júlíusdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka fjármálafyrirtækja og fyrrverandi ráðherra, segist spyrja sig reglulega hvers vegna við þurfum allar þessar umbúðir utan um hefðbundnar mat- og heimilisvörur.

Katrín skrifaði færslu um þetta á Facebook í gær sem vakti talsverða athygli. Þar varaði hún reyndar við því að um „röflstatus“ væri að ræða en ljóst má vera að margir eru sammála henni. Gefum Katrínu orðið:

„Var að elda einfalda máltíð fyrir strákagengið í gærkvöldi og í flokkunartunnurnar fóru plastbox utan af litlum tómötum, tveir plastbakkar, tvær plastfilmur, plastumbúðir utan af grænmetisbuffi, pappírsræma, álbréf, glerkrukka og állok. Þetta bar ég heim í taupokunum.“

Katrín segir að hana langi mjög, mjög mikið að geta keypt meira án plasts og pappírs og fyllt frekar á fjölnota ílát án þess að það kosti handlegg.

„Ekki alveg einfalt að gera þetta í stórmörkuðum en hey kona má vona að framleiðendur finni leiðir fljótlega. Þetta var nú allt og sumt yfir kaffibollanum. Njótið dagsins og sendum baráttukveðjur til Glasgow.“