Katrínu hótað á Seyðis­firði: „Það þótti á­­stæða til að gæta fyllsta öryggis“

Katrínu Jakobs­dóttur for­sætis­ráð­herra bárust hótanir á Seyðis­firði skömmu fyrir há­degið. Að því er fram kemur á vef Frétta­blaðsins var Katrín færð af­síðis úr skoðunar­ferð sinni um Ferju­húsið af lög­reglu­manni eftir að henni bárust hótanir frá íbúa á svæðinu.

Blaða­maður Frétta­blaðsins er á svæðinu og segir hann að að and­rúms­loftið hafi verið þungt. Var hún á leið í við­tal við Bylgjuna þegar lög­reglu­maður fór með hana af­síðis.

Var Katrín færð í varð­skip Land­helgis­gæslunnar um stundar­sakir en hún er nú komin aftur frá borði og hefur eðli­leg dag­skrá hafist að nýju.

Frétta­blaðið hefur eftir Kristjáni Ólafi Guðna­syni, yfir­lög­reglu­þjóni á svæðinu, að ó­víst sé ná­kvæm­lega í hverju hótanirnar fólust. „Þær voru þess eðlis að það þótti á­stæða til að gæta fyllsta öryggis,“ segir hann.