Katrín Atladóttir, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, kallar eftir því að grímuskylda verði áfram í gildi þegar næstu afléttingar á takmörkunum vegna kórónuveirufaraldursins verða tilkynntar.
Einhverjir hafa kallað eftir því að grímuskyldan verði afnumin. Hringbraut sagði til dæmis frá því á þriðjudag að grínistinn Saga Garðarsdóttir vildi grímurnar burt. „Ég get lifað lengur með öllum núverandi takmörkunum en plís getum við afnumið grímuskyldu?,“ sagði hún á Twitter og fékk færsla hennar ágætar undirtektir þar.
Katrín er hins vegar á því að grímurnar valdi engum skaða.
„Margir sem vilja losna við grímur í afléttingum. Grímur valda því ekki að fólk missir vinnuna. Fjöldatakmarkanir og 2m regla aftur á móti valda því ásamt takmörkum á opnunartíma. Ég skal alveg vera með grímu áfram ef fleiri mega koma saman og hinir ýmsu rekstraraðilar lifa af,“ segir hún á Twitter.