Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, viðurkennir að það hafi hvarflað að sér að hætta við að hlaupa í Reykjavíkurmaraþoninu í dag, en hún hljóp tíu kílómetra til styrktar Alzheimersamtakanna. Þetta kemur fram í færslu hennar á Facebook í dag.
„Ég viðurkenni að þegar ég vaknaði í morgun og hlustaði á vindgnauð fyrir utan þá hvarflaði það að mér að ég væri ekki alveg í lagi að ætla að hlaupa 10 kílómetra í þessum norðangarra. En það var engin undankomuleið svo ég var mætt með meðhlaupara mínum, G Pétri Matthíassyni, sem líka hljóp fyrir Alzheimersamtökin.“
Þetta skrifar Katrín og bætir við að sonur hennar hafi jafnframt hlaupið.
„Illugi sonur minn var líka með í för en hann stakk mig nú af í byrjun og kom í mark meira en tíu mínútum á undan mér. Þetta var í stuttu máli alveg geggjað (orð ársins er mér sagt), ótrúlega mörg að hvetja og stemmningin svo falleg. Og Rakel hlaupaþjálfari og Àrmann Áki, minn yngsti, voru mjög dugleg í hvatningunni!“