Katrín vaknaði upp við vondan draum á mánu­dag - Sjáðu myndirnar

Ó­hætt er að segja að Katrín Ísa­fold Guðna­dóttir hafi vaknað upp við vondan draum á mánu­dag. Katrín er bú­sett við Suður­götu í Sand­gerði en þegar hún kom út á mánu­dags­morgun var búið að grafa í sundur inn­keyrsluna við heimili hennar.

Eins og sést á með­fylgjandi mynd varð bif­reið Katrínar inn­lyksa og komst hún hvorki lönd né strönd.

Enginn sem lét vita

„Það var enginn sem lét okkur vita að fram­kvæmdir væru fyrir­hugaðar,“ segir Katrín í sam­tali við Hring­braut. Eðli málsins sam­kvæmt voru Katrín og maður hennar ekki sátt við þessi vinnu­brögð og segir Katrín að maðurinn hennar hafi fengið hroka­full svör þegar hann leitaði skýringa hjá verk­tökum á svæðinu.

„Svo fór ég út og talaði við þá og þá sögðust þeir hafa bankað og bankað en enginn komið til dyra. Það getur ekki verið því ég var heima allan daginn. Þó þeir hafi verið snemma á ferðinni og ég verið sofandi þá hefði ég vaknað,“ segir hún.

Leiðinlegt en svona er þetta

Það var svo í gær að Katrín náði sam­bandi við bæjar­skrif­stofuna en þar fengust þau svör að fram­kvæmdin hefði ekki getað beðið. Flætt hefði inn í hús og grípa hafi þurft strax til að­gerða. „Hann sagði að þetta væri leiðin­legt en svona væri þetta bara,“ segir hún.

Það var svo á mánu­dags­kvöldið að verk­takar á svæðinu lögðu plötur yfir skurðinn þannig að Katrín kom að minnsta kosti bílnum út. plöturnar voru svo fjar­lægðar en þess í stað er búið að setja göngu­brú yfir.

Erfitt að hlaða rafmagnsbílinn

Fram­kvæmdirnar hafa komið sér illa fyrir Katrínu og nýjan leigjandi sem var að flytja á neðri hæð hússins. „Hann þurfti að bera svefn­sófa hringinn í kringum húsið og elda­vél. Við erum að fara taka bað­her­bergið í gegn og komum ekki kerru eða neinu að til að koma með flísar,“ segir Katrín og bætir við að hún og maður hennar hafi ekki komist í apótek á mánudag til að kaupa nauðsynleg lyf. Varð það til þess að hann endaði hann á bráðamóttökunni í Fossvogi aðfaranótt þriðjudags, að sögn Katrínar..

Til að bæta gráu ofan á svart er hún á raf­magns­bíl og með hleðslu­stöð við húsið. Hún getur því ekki hlaðið bílinn sinn. „Mér var sagt að ég gæti hlaðið hann fyrir framan bæjar­skrif­stofuna. En ég geng ekki að því vísu að það sé alltaf laust þar,“ segir hún en bæjar­skrif­stofurnar eru auk þess nokkuð frá heimili hennar.

Katrín er allt annað en sátt og segist hafa fengið þau skila­boð að fram­kvæmdirnar gætu tekið ein­hverjar vikur, jafn­vel rúman mánuð. „Mér finnst það mjög mikið. Það er til dæmis ekkert verið að vinna fyrir utan húsið núna,“ segir hún.