Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra Íslands, fagnaði á Facebook í dag ákvörðun Willum Þórs Þórssonar heilbrigðisráðherra að aflétta öllum sóttvarnaraðgerðum.
„Í dag tók heilbrigðisráðherra þá gleðilegu ákvörðun að öllum sóttvarnaráðstöfunum verði aflétt, bæði hér innanlands og á landamærum. Ástæðan er fyrst og fremst breytt aðferðafræði stjórnvalda sem á rætur að rekja til þess að bólusetningarstaða hér á landi er góð og ómikrón-afbrigðið er vægara en fyrri afbrigði. Þar af leiðandi höfum við séð mun lægra hlutfall þeirra sem veikjast alvarlega þó að mjög mörg séu smituð,“ skrifar Katrín en setur þó varnagla fyrir þjóðina.
„Þetta merkir ekki að faraldrinum sé lokið; áfram er veiran að herja á fólk og ljóst að mörg munu smitast á næstu vikum. En við erum komin á þann stað að geta lifað með veirunni. Áfram skiptir máli að hugsa um heilsuna og vera til dæmis heima sé maður veikur – þó að maður sé ekki í lögskipaðri einangrun. Ákvörðunin í dag merkir hins vegar að við endurheimtum eðlilegt líf!“ skrifar Katrín að lokum.