Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra segist einkum hafa lært tvennt á löngum ferli sínum í stjórnmálum.
„Í fyrsta lagi að það er leyfilegt að gera mistök, og í öðru lagi að það er í lagi að það líki ekki öllum við mann,“ sagði Katrín sem var gestur Sigurlaugar M. Jónasdóttur í þættinum Segðu mér. Fjallað er um viðtalið á vef RÚV.
Katrín, sem hefur setið á þingi sleitulaust frá árinu 2007, segist hafa tamið sér það fyrrnefnda fljótlega eftir að hún tók sæti á þingi Góður kollegi hennar hafi sagt henni að það væri ekki hægt að gera allt 100% og ef hún reyndi það myndi hún hætta innan eins árs. Seinna atriðið kom síðar: „Það kom bara fyrir 4-5 árum og það er frelsun,“ sagði hún.
Í viðtalinu fóru þær Sigurlaug og Katrín um víðan völl og ræddu meðal annars um pólitíkina sem getur verið harður húsbóndi. Katrín hefur verið formaður VG frá árinu 2013 en hún hefur einnig verið menntamálaráðherra á löngum ferli sínum í stjórnmálum.
Sjálf segist hún ekki lesa athugasemdakerfi fjölmiðla og þá hafi eiginmaður hennar hætt á samfélagsmiðlum þegar hún tók við sem forsætisráðherra.
Þá segist hún stundum fá haturspósta en það sé eitthvað sem væntanlega flestir stjórnmálamenn kannist við. Slíkum póstum svarar hún ekki en heldur til haga og geymir í möppu. „Ég er að spá í að gefa þetta út á bók einhvern tímann,“ sagði hún í viðtalinu og bætti við að hún væri ekki langrækin.
Hægt er að hlusta á viðtalið við Katrínu hér.