Katrín Björk Birgisdóttir, naglafræðingur og Youtube stjarna birti í gær myndband þar sem hún sýnir hvernig er hægt að fæða heila fjölskyldu í viku á undir 6.500 krónum.
Myndbandið hefur verið að ganga manna á milli á samfélagsmiðlum og hafa þúsundir horft á það síðan í gær enda matarverð á Íslandi einstaklega dýrt.
Katrín segir í myndbandinu að hún hafi verið spennt að prófa þetta en á heimili ásamt henni og manninum hnnar eru tvö börn. Hún ákvað að elda góðar heilsusamlegar máltíðir með öllu tilheyrandi í sex daga.
Ótrúlegt en satt þá tókst það og átti hún meira að segja afganga í tvo daga.
Sjáðu myndbandið hér að neðan.