Katrín svarar Björk: „Við vildum aðra nálgun“

Katrín svarar Björk: „Við vildum aðra nálgun“

Katrín Jakobsdóttir svarar Björk Guðmundsdóttir og segir að hún hafi einfaldlega viljað aðra nálgun í loftlagsmálum en Björk. Það hafi veirð niðurstaðan eftir ríkisstjórnarfund.

Þetta sagði Katrín að loknum ríkisstjórnarfundi. Björk skaut föstum skotum að Katrínu í viðtali við Guardian og sagði hana ekkert hafa gert fyrir umhverfið.

Hún hafi svikið samkomulag um að lýsa yfir neyðarástandi í loftlagsmálum. „Það er alveg rétt að Björk hvatti mig til þess að lýsa yfir neyðarástandi í skilaboðum sem hún sendi mér,“ sagði Katrín á Bylgjunni.

„Okkar niðurstaða var hins vegar að við vildum aðra nálgun, við vildum leggja áherslu á aðgerðir sem skila árangri,“ segir Katrín, sem segir tíma kominn til aðgerða frekar en orða.

Ísland hafi verið meðal fyrstu þjóða til að lögfesta kolefnisleysi og unnið samkvæmt ítarlegri aðgerðaráætlun. Hún segir leitt að Björk hafi orðið fyrir vonbrigðum.

Katrín segist vísa því á bug að hafa ekkert gert fyrir umhverfið, líkt og Björk sagði svekkt í samtali við The Guardian. „Loftslagsmálin voru sannarlega til umræðu á þessum tíma, sem og endranær.“