Nokkuð spaugileg uppákoma varð í beinni útsendingu RÚV að loknum blaðamannafundi forsætisráðherra um afléttingu ferðatakmarkanna í dag.
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra kynnti þar aðgerðir sem miðað að því að þeir sem koma til landsins, innlendir ferðamenn jafnt og erlendir, geti valið um að fara í skimun fyrir COVID-19 við komuna til landsins í stað þess að fara í sóttkví.
Að loknum blaðamannafundinum sagði Katrín að blaðamenn gætu spurt spurninga. Þegar engar spurningar höfðu verið bornar upp gekk hún að Áslaugu Örnu Sigurbjörnsdóttur dómsmálaráðherra og sagði: „Engar spurningar? Hvar er Björn Ingi?“ Óvíst er hvort Katrín hafi áttað sig á að þetta heyrðist nokkuð vel í útsendingunni.
Björn Ingi Hrafnsson, ritstjóri Viljans, hefur verið reglulegur gestur á upplýsingafundum almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra í COVID-19 faraldrinum. Þar hefur hann vakið athygli fyrir spurningar sínar og meðal annars komið fram í vikulegum þætti Gísla Marteins Baldurssonar.
Uppákomuna má sjá fljótlega eftir að Katrín lýkur ræðu sinni.