Katrín Júlíusdóttir, fyrrverandi ráðherra og núverandi framkvæmdastjóri Samtaka fjármálafyrirtækja, freistar þess nú að losna við svæsið frjókornaofnæmi sem hefur háð henni á sumrin.
„Aldrei verið jafn spennt fyrir spítalaheimsókn. Mætt í vöktun vegna inntöku á fyrstu afnæmingartöflunni, Grazax. Allt er nú til,“ segir Katrín á Twitter-síðu sinni og bætir við að svæsið grasofnæmið eigi það til að loka nefinu og sprengja augun. Sumrin geti því verið býsna erfið.
„Finnst þetta því alger snilld,“ bætir hún við.
Lyfið virðist virka vel gegn frjókornaofnæmi og bendir ein á í athugasemd við færslu Katrínar að eiginmaður hennar hafi lokið við svona meðferð fyrir nokkrum árum. Ofnæmið hafi minnkað verulega og hann geti notið sumranna núna.
Á vef Lyfju kemur fram að þegar ofnæmisvaldur berst til líkamans með snertingu fari af stað flókið ferli í líkamanum með ofnæmisviðbrögðum og tilheyrandi ofnæmiseinkennum.
„Fyrir þá sem eru haldnir miklu ofnæmi, orsakavaldurinn er þekktur og ofnæmið háir verulega viðkomandi, er ákveðin meðferð reynd sem kallast afnæmingarmeðferð,“ segir í umfjöllun um lyfið og því bætt við að Grazax innihaldi hreinsuð ofnæmisvakaextrökt sem eru notuð við slíka meðferð.
„Meðferðin felst í því að gefa ofnæmisvakann reglulega í nokkur ár, í von um að líkaminn aðlagist og hætti að sýna viðbrögð við ofnæmisvakanum. Grazax er notað við frjókornaofnæmi.“
Aldrei verið jafn spennt fyrir spítalaheimsókn. Mætt í vöktun vegna inntöku á fyrstu afnæmingartöflunni, Grazax. Allt er nú til. Svæsið grasofnæmið lokar nebba, sprengir augun og bara dæs.. Sumrin ansi erfið. Finnst þetta því alger snilld 🙏🏼🤧 #vongóð
— Katrín Júlíusdóttir (@katrinjul) December 28, 2021