Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra er sögð leita logandi ljósi að nægu bóluefni gegn COVID-19 fyrir íslensku þjóðina. Morgunblaðið fullyrðir þetta á forsíðu sinni í dag.
Misvísandi upplýsingar hafa borist um komu bóluefnis gegn veirunni til landsins. Ekki er langt síðan talað var um að bólusetning yrði kláruð á fyrri hluta næsta árs en nú er óvíst hvort henni verði lokið fyrr en undir lok næsta árs.
Í frétt Morgunblaðsins kemur fram að Katrín hafi tekið málið inn á sitt borð, það er öflun og dreifingu bóluefnis hér á landi. Er hún sögð hafa fundað með Angelu Hwang, framkvæmdastjóra hjá Pfizer, í gær vegna málsins og þá eru fyrirhugaðir fundir með Moderna. Þá átti Katrín fund með forseta framkvæmdastjórnar ESB í gærmorgun eins og komið hefur fram.
Að sögn Morgunblaðsins hefur hitnað undir Svandísi Svavarsdóttur heilbrigðisráðherra vegna málsins vegna misvísandi upplýsinga um bóluefni. Þingmenn í stjórn og stjórnarandstöðu sem Morgunblaðið ræddi við sögðu að ákvörðun Katrínar að taka málið inn á sitt borð sé til marks um að „þeirra efasemda gæti víðar“ eins og segir í fréttinni.
Upplýsingafundur almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra í gær fór að nokkru leyti undir umræðu um bóluefnið. Össur Skarphéðinsson, fyrrverandi þingmaður og utanríkisráðherra, sagði eftir fundinn að upplýsingaóreiðu gætti í málinu og það væri til marks um dæmalaust klúður að ekki hefði verið samið um afhendingartíma á bóluefninu þó íslensk stjórnvöld hefðu gert samninga við einstaka lyfjarisa.
Björn Ingi Hrafnsson, ritstjóri Viljans og höfundur bókarinnar Vörn gegn veiru, skrifaði einnig um málið eftir upplýsingafundinn í gær. Björn Ingi hefur setið býsna marga upplýsingafundi en í pistli sínum sagði hann að í gær hefði honum í fyrsta skipti fundist hann ekki fá fullnægjandi svör við spurningum sínum.