Katrín sögð langhæfust: Óumflýjanlegt að hún verði áfram forsætisráðherra

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra er langöflugasti stjórnmálamaður landsins og enginn er betur til þess fallin að vera forsætisráðherra en hún.

Þetta er mat Kolbrúnar Bergþórsdóttur sem birtist í leiðara Fréttablaðsins í dag. Kolbrún lofar þar Katrínu í hástert og segir hana hafa verið einkar farsælan forsætisráðherra. Haldi núverandi ríkisstjórn áfram eftir kosningar blasi við að hún verði leiðtogi þeirrar stjórnar.

„Ljóst er að þjóðin umber þessa ríkisstjórn betur en síðustu stjórnir og mögulegt er að hún sitji eitt kjörtímabil í viðbót. Það er ekki sérlega ógnvekjandi tilhugsun. Ríkisstjórnin hefur ekki staðið sig áberandi illa þótt samhygð hennar með stórútgerðinni veki ætíð undrun og hljóti að flokkast sem afar hvimleiður galli,“ segir Kolbrún og bætir við að þjóðin sé að stórum hluta búin að gera upp við sig hvern hún vill sem forsætisráðherra.

„Katrín Jakobsdóttir, núverandi forsætisráðherra, nýtur yfirburða trausts. Hún hefur verið einkar farsæll forsætisráðherra, sterk og ákveðin manneskja, sanngjörn og býr yfir nauðsynlegri samningalipurð. Meira að segja þeir sem andvarpa yfir tilveru Vinstri grænna (og þeir eru ansi margir) viðurkenna flestir að enginn núlifandi stjórnmálamaður er betur til þess fallinn að gegna starfi forsætisráðherra en einmitt Katrín Jakobsdóttir. Haldi núverandi ríkisstjórn áfram veginn eftir næstu kosningar blasir við að Katrín mun verða leiðtogi þeirrar stjórnar. Verði annars konar stjórnarmynstur, en þó með Vinstri græn innanborðs, er nauðsynlegt fyrir þá ríkisstjórnarflokka að velja Katrínu sem forsætisráðherra, enda er hún langöflugasti stjórnmálamaður landsins. Annað val á forsætisráðherra myndi veikja þá stjórn til muna,“ segir Kolbrún meðal annars.