Margir göptu þegar í ljós kom að kaupóðir Íslendingar tæmdu átta full bretti af Air-fryer, eða loftsteikingarpottum, á nokkrum mínútum þegar pottarnir fóru á sölu í Costco í Garðabæ.
„Það tók svona þrjár mínútur fyrir allar palletturnar að hverfa,“ sagði Sigurður Helgi Pálmason, við K100, en Sigurður segist hafa séð einn hafa keypt 14-16 stykki af pottinum.
Katrín Atladóttir, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, er meðal þeirra sem skilur ekkert í þessu en hún segir á Twitter:
„Ég heyrði í fyrsta skipti talað um air fryer fyrir mánuði þegar bandarísk kona sem fluttist hingað sagði mér hún gæti ekki stungið sínum í samband og ég nennti ekki að spyrja hana hvað það væri. Ég er enn engu nær og skil ekkert.“
Erlendur nokkur sagði henni: „Þetta er bara stand-alone blástursofn.“
Katrín var engu nær: „Til hvers? Fyrir fólk sem á ekki ofn?“