Katrín segist ekki vera tekin við af Svan­dísi: „Ég er bara að vinna vinnuna mína“

Katrín Jakobs­dóttir for­sætis­ráð­herra segir það ekki rétt að hún hafi tekið leitina að bólu­efni inn á sitt borð af Svan­dísi Svavars­dóttur heil­brigðis­ráð­herra.

Sjá einnig: Katrín sögð leita að bóluefni: Farið að hitna undir Svandísi?

Morgun­blaðið greindi frá því á for­síðu sinni í gær að farið væri að hitna undir Svan­dísi vegna málsins, en mis­vísandi fréttir hafa borist um komu bólu­efnis til landsins. Kom fram að Katrín hefði eytt drjúgum hluta mánu­dagsins í sím­töl við hátt setta ein­stak­linga til að tryggja Ís­lendingum bólu­efni.

Í frétt Morgun­blaðsins í dag segist Katrín ekki hafa tekið við verk­efninu. „Ég er bara að vinna vinnuna mína,“ hefur blaðið eftir henni. Hún bætir við að verk­efnið hafi verið á borði ríkis­stjórnarinnar lengi og heil­brigðis­ráð­herra haft for­ystu um málið. „Mitt hlut­verk í þessu er bara eins og allra annarra for­sætis­ráð­herra í heiminum.“

Þá hefur Morgun­blaðið eftir Róberti Mars­hall, upp­lýsinga­full­trúa ríkis­stjórnarinnar, að koma bólu­efnis til landsins sé á sömu tíma­á­ætlun og bólu­efni þeirra ríkja sem semja um það í gegnum ESB.