Katrín segir ljóst að að­gerðir stjórn­valda í far­aldrinum muni hafa lang­vinn neikvæð á­hrif - Birtir lista yfir viðbrögð stjórnvalda til rétta samfélagið af

„Þó að heims­far­aldurinn hafi ekki lengur á­hrif á dag­­legt líf okkar flestra og sam­­fé­lagið sé að mestu komið aftur í fyrra horf eru skýrar vís­bendingar um að far­aldurinn og að­­gerðir vegna hans geti haft á­hrif sem orðið geta lang­vinn verði ekki brugðist við,“ skrifar Katrín Jakobs­dóttir for­sætis­ráð­herra á Face­book.

„Ríkis­­stjórnin á­kvað af þessum sökum að setja á fót starfs­hóp til að vinna til­­lögur um að­­gerðir til að draga úr nei­­kvæðum lang­­tíma­á­hrifum far­aldursins á við­­kvæma hópa í sam­­fé­laginu. Starfs­hópurinn skilaði til­­lögum sínum að að­­gerðum í síðustu viku en þær snúa að því að auka virkni við­­kvæmra hópa, koma í veg fyrir ein­mana­­leika og fé­lags­­lega ein­angrun eldra fólks og fatlaðra, auka þjónustu við lang­­tíma­at­vinnu­­lausa, styðja við geð­heil­brigðis­­þjónustu og fjar­heil­brigðis­­þjónustu og beita auknum for­vörnum og þjónustu við þol­endur og ger­endur of­beldis“

„Þá gerir starfs­hópurinn til­­lögur um á­­fram­haldandi að­­gerðir til að bregðast við lengri bið­­tíma í úr­­ræði á vegum stjórn­valda fyrir börn m.a. hjá Ráð­gjafar- og greiningar­­stöð og Barna- og fjöl­­skyldu­­stofu og að­­gerðir innan fram­halds­­skóla í tengslum við aukið brott­hvarf frá námi, sál­­fræði­­þjónustu og náms- og starfs­ráð­­gjöf,“ heldur hún á­fram.

Á­­kveðið hefur verið að verja einum milljarði króna á ári næstu þrjú árin til þessara verk­efna sem kemur til við­bótar 750 milljónum króna sem varið er til að­­gerða á þessu ári, eða sam­tals tæp­­lega fjórum milljörðum króna.

„Þetta er mikil­­vægur liður í því að fylgja eftir þeim á­­gæta árangri sem við náðum í bar­áttunni við far­aldurinn og tryggja að sú á­hersla sem við lögðum á að koma í veg fyrir fé­lags­­legar og efna­hags­­legar af­­leiðingar hans skili sér til fram­­tíðar,“ skrifar Katrín að lokum.