Katrín segir að verið sé að skoða aðra möguleika vegna bóluefnis

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra segir að íslensk stjórnvöld skoði nú aðra kosti um öflun bóluefnis gegn COVID-19. Eins og kunnugt er hefur ríkt talsverð óánægja með bóluefnasamstarf Evrópusambandsins og hversu hægt hefur gengið að útvega bóluefni.

Í Morgunblaðinu í dag segir Katrín að Íslendingar ætli ekki úr samstarfi ESB en bendir á að ríkjum innan samstarfsins sé heimilt að afla sér bóluefna með öðrum hætti. „Þetta mál er ESB mikill trúverðugleikavandi, en við munum halda áfram okkar striki,“ segir hún.

Katrín vill ekkert gefa upp um það hvort viðræður við utanaðkomandi aðila hafi átt sér stað, en eins og kunnugt er höfðu íslensk stjórnvöld ætlað sér að ljúka bólusetningu meirihluta þjóðarinnar fyrir lok júnímánaðar. Á þessari stundu er alls óvíst hvort það takist.

Þá er bent á að lyfjaframleiðandinn Johnson & Johnson hafi varað við hugsanlegum töfum á framleiðslu bóluefnis, en Íslendingar hafa samið um 235 þúsund skammta við fyrirtækið.

„Það er ekki búið að staðfesta í hverju bakslagið hjá þeim felst, en samkvæmt okkar upplýsingum stendur enn til að það fái markaðsleyfi í Evrópu nú í mars,“ segir Katrín við Morgunblaðið í dag.