Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, hefur tjáð sig um skýrslu Ríkisendurskoðunnar á sölu á hluta í Íslandsbanka. Það gerði hún í ræðu á Alþingi.
„Í þeirri skýrslu sem nú hefur verið birt kemur fram gagnrýni, bent er á annmarka á sölu á þessum hlut í Íslandsbanka.“ sagði Katrín. „Við eigum að taka þessari gagnrýni alvarlega og við eigum að bregðast við henni, og þar hygg ég að við séum mörg hver í öllu falli sammála hér á þinginu.“
Hún viðurkenndi að verðið á hlutunum hefði getað verið hærra, og þá hefði mátta fara betur með gagnsæi og upplýsingamál í sölunni. „Mér finnst það reyndar alvarlegt mál.“ sagði Katrín
„Varð ég fyrir vonbrigðum með þessa framkvæmd? Já. Það er margt í þessari skýrslu sem veldur mér verulegum vonbrigðum.“ sagði forsætisráðherra: „Og mér finnst hún sýna það að það er rík ástæða til að endurskoða allt þetta fyrirkomulag frá grunni, eins og ég sagði hér í vor.“