Katrín Oddsdóttir lögfræðingur á varla orð til að lýsa aðdáun sinni á Haraldi Inga Þorleifssyni. Haraldur var einn af skattakóngum ársins í fyrra.
Samkvæmt álagningarskrá ríkisskattstjóra, sem lögð var fram í gær, námu mánaðarlaun hans rúmum 102 milljónum króna samkvæmt greiddu útsvari. Haraldur hefur vakið gríðarlega athygli hér á landi síðustu misseri en hann seldi fyrirtæki sitt, Ueno, til Twitter og ákvað að greiða allan skatt af sölunni hér á landi. Vildi Haraldur með því styðja íslenskt heilbrigðis- og menntakerfi. Þá hefur átak hans, Römpum upp Reykjavík, vakið athygli.
Í færslu sinni á Facebook hrósar Katrín honum í hástert og er óhætt að segja að margir taki undir.
„ÞÚ FRÁBÆRI SKATTAPRINS!
Haraldur Ingi Þorleifsson borgaði skatta af rúmlega 107 milljónum króna á mánuði í fyrra. Hann seldi hönnunarfyrirtæki sitt Ueno til Twitter á síðasta ári og ákvað að greiða skatta af sölunni hér á landi til þess að greiða sinn hlut af samneyslunni, þvert á ráðleggingar skattaráðgjafa. Þá fór hann fram á það við Twitter að kaupverðið yrði greitt sem launagreiðslur en með því hámarkaði hann þá skatta sem hann borgaði af sölunni.
Hann hefur vakið mikla athygli undanfarið fyrir að láta fé af hendi rakna til hinna ýmsu málefna. Hann kom á fót verkefnunum Römpum upp Reykjavík og Römpum upp Ísland, sem miða að því að auka hjólastólaaðgengi.
Pælið í því hvernig væri að búa í þessum heimi ef meginreglan væri sú að auðugt fólk hugsaði eins og Haraldur.“