Katrín olga um ofeldi neikvæðnipúkans og verðmætasköpunina í fjölbreytileikanum

Katrín Olga Jóhannesdóttir, formaður Viðskiptaráðs, er gestur í nýjasta þætti Jóns G. þar sem þau ræða mjög athyglisverða grein Katrínar og Konráðs S. Guðjónssonar, hagfræðings Viðskiptaráðs, í Morgunblaðinu á dögunum um Ofeldi neikvæðnipúkans. Fram kemur að fólki hættir til að láta neikvæðnipúkann á annarri öxl sinni hafa meiri áhrif en jákvæða engilinn á hinni - og þannig dregur það oft neikvæðar ályktanir í stað jákvæðra. Til dæmis: Af almennri umræðu má stundum ætla að heimurinn sé á hverfanda hveli „en heimur batnandi fer,“ segir Katrín.

Þau Jón G. ræða einnig mikilvægi fjölbreytileikans en Katrín Olga hefur lagt mikla áherslu á þau mál á undanförnum árum sem formaður Viðskiptaráðs. Fjölbreytileikinn gerir ekki aðeins lífið skemmtilegra heldur hefur áhrif á hagvöxtinn; það leynist mikill verðmætasköpun í fjölbreytileikanum.

Viðtalið við Katrínu Olgu í heild sinni er að finna hér: