Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra og Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra eru ekki á sama máli varðandi kaup Síldarvinnslunnar á útgerðarfélaginu Vísi frá Grindavík.
„Í Grindavík er vel rekin umfangsmikil starfsemi. Það er engin ástæða til að ætla annað en að svo verði áfram,“ segir Bjarni í samtali við Fréttablaðið um málið og segist ekki hafa áhyggjur af viðskiptunum.
Hann var einnig spurður hvort að málið myndi auka sundrungu um fiskveiðikerfið. Hann svaraði: „Það eru margir sem ala á sundrungu vegna kerfisins.“
Katrín lýsti gjörólíkri sýn þegar hún var spurð út í málið.
„Ég hef áhyggjur af þessari miklu samþjöppun í sjávarútvegi,“ segir Katrín og bætir við:
„Mín skoðun er að það þurfi að gera úrbætur er kemur að kvótaþakinu, til dæmis skilgreiningu á tengdum aðilum,“ segir forsætisráðherra.
Að lokum var forsætisráðherra spurð hvort kaupin væru olía á eld, og hún svaraði: „Aukin samþjöppun eykur ekki sátt um greinina,“
Hægt er að lesa nánar um málið á vef Fréttablaðsins.