Katrín minnist foreldra sinna: „Í dag eru tíu ár síðan móðir mín lést“

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra minnst foreldra sinna í hjartnæmri kveðju sem hún birtir á Facebook.

„Í dag eru tíu ár síðan móðir mín lést eftir skammvinna baráttu við krabbamein og í ár eru 25 ár síðan faðir minn dó, einnig eftir stuttan slag við krabbamein,“ skrifar Katrín.

Hún birtir svo myndir af þeim.

Í dag eru tíu ár síðan móðir mín lést eftir skammvinna baráttu við krabbamein og í ár eru 25 ár síðan faðir minn dó,...

Posted by Katrín Jakobsdóttir on Saturday, December 11, 2021

Katrín segir svo:

„Myndirnar sýna þau löngu áður en sá leiði gestur bankaði upp á, mamma er þarna á skólaskírteini, líklega úr MR en hún tók fyrsta árið í MA. Og pabbi á Siglufirði, töffaralegur að sjá. Bæði ung með framtíðina fyrir sér. Þau kvöddu bæði of snemma en áttu gott og innihaldsríkt líf. Loginn þeirra lifir enn hjá okkur sem munum eftir þeim og hugsum til þeirra með þakklæti í hjarta.“