Katrín Júlíusdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins og fyrrverandi þingmaður og ráðherra, varpar fram játningu á Twitter-síðu sinni í dag.
Það skal þó strax tekið fram að Katrín er ekki að játa á sig alvarlegan glæp, nema ef einhverjum skyldi finnast það glæpur að hafa ekki gaman að jólakökubakstrinum.
„Jólajátning: Mér finnst alls ekki gaman að baka smákökur. Er heldur ekki góð í því. Vil mínar bara úr boxi. Frá öðrum. Gott að koma þessu frá sér bara,“ segir Katrín.
Katrín er langt því frá sú eina sem finnst leiðinlegt að baka smákökur eða kýs að kaupa þær frekar úti í búð. Katrín Atladóttir borgarfulltrúi segir að hún sé einmitt dugleg að kaupa deig og baka og krakkarnir fái svo að hakka það í sig. Þá er ein sem bendir á að deigið úr IKEA sé málið. „Skerð í bita, inn í ofn í 10 og Voilà!“
Jólajátning: Mér finnst alls ekki gaman að baka smákökur. Er heldur ekki góð í því. Vil mínar bara úr boxi. Frá öðrum. Gott að koma þessu frá sér bara.
— Katrín Júlíusdóttir (@katrinjul) December 19, 2021