Katrín lítur á Bjarna sem vin sinn: „Við hittumst ekki utan vinnutíma“

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra er í athyglisverðu viðtali í Fréttablaðinuí dag en tilefnið er að í dag eru liðin fimm ár síðan hún varð forsætisráðherra.

Í viðtalinu er hún meðal annars spurð út í samband hennar og Bjarna Benediktssonar, formanns Sjálfstæðisflokksins og fjármálaráðherra, og hvort hún líti svo á sem hún eigi vin í Bjarna og Sigurði Inga Jóhannssyni, formanni Framsóknarflokksins.

Í viðtalinu kemur fram að Katrín hafi svarað eftir dálitla þögn að ekkert þeirra þriggja hittist utan vinnu, það séu til dæmis engin teboð á sunnudögum eða bíóferðir þegar um ræðir þau þrjú sem hóp.

„En við höfum öll verið lengi á þingi og þótt við höfum ekki verið í sama liði höfum við kynnst vel í gegnum það samstarf, ekki síst á örlagatímum líkt og í miðju efnahagshruninu,“ segir hún.

„Við hittumst ekki utan vinnutíma en það ríkir mjög mikið traust á milli okkar og traustið er einhvers konar vinskapur. Við getum treyst því að ekkert okkar stingur annað í bakið.“

Viðtalið við Katrínu má nálgast á vef Fréttablaðsins.