Katrín kveður niður þekktan orðróm um Valhöll

Því hefur margoft verið haldið fram af þeim sem ekki þekkja til að eitthvað miðlægt afl stjórni því hvað fólk skrifar og hvenær. Margir hafa sakað Brynjar Níelsson, aðstoðarmann innanríkisráðherra, um að skrifa eftir skipunum, Brynjar er alls ekki sá eini sem hefur verið sakaður um slíkt. Katrín Atladóttir, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, segir á Twitter;

„Finnst þessi kenning sem ég sé reglulega um einhvern spunameistara í Valhöll sem ákveður hver á að skrifa og um hvað og lesi yfir og samþykki greinar svo ógeðslega fyndin,“ segir hún. „Hvernig væru þá eiginlega greinarnar sem er hafnað og væri ekki búið að taka af mér lyklaborðið?“

Svanborg Sigmarsdóttir í Viðreisn segir að hún geri slíkt í sínum flokki:

„Ég veit ekki hvernig þetta er í Valhöll en hvað heldur þú að ég sé eiginlega að gera allan daginn!,“ segir hún í léttum tón.

Katrín notaði tækifærið til að hæðast að Viðreisn:

„Minna mál í svona smáflokki.“

Svanborg svaraði að bragði: „Þegar að línan er komin, þá er þetta ekkert mál, óháð fjölda.“

Steinar nokkur segir hann hlægi alltaf af svona kenningum:

„Það sem fellir flestar samsæriskenningar er að þær stóla alltaf á það að eitthver hópur búi yfir yfirnáttúrulegu skipulagi. Það þykir mér alltaf svo fyndið. Sannleikurinn: ALLIR eru meira og minna winging it.“

Katrín segir þetta ógeðslega góðan punkt.

Hersir Aron Ólafsson, aðstoðarmaður Bjarna Benediktssonar formanns, sagði svo:

„Við vorum ekki búin að samþykkja þetta tweet..“