Katrín komin á nýjan ráð­herra­bíl - Skottið reyndist vera of lítið

Katrínu Jakobs­dóttur for­sætis­ráð­herra er nú ekið um á ráð­herra­bíl af gerðinni Audi e-tron en ekki Mercedes Benz EQC eins og áður. Frétta­blaðið greinir frá því í dag að ein af á­stæðum þess að nýr bíll var fenginn hafi verið sú að far­angurs­rými Benz-bílsins var of lítið.

Greint var frá því í nóvember í fyrra að Umbra – þjónustu­mið­stöð Stjórnar­ráðsins hefði fjár­fest í nýjum raf­magns­sport­jeppa, Mercedes Benz, til að þjónusta Katrínu. Bíllinn kostaði 7,5 milljónir króna og fékk Umbra 25-30% af­slátt af lista­verði. Sam­hliða kaupunum var gerður samningur um kaup á þremur sams­konar bif­reiðum næsta árið.

Eins og Frétta­blaðið greinir frá er Katrínu þó ekið um á Audi e-tron og segir Viktor Jens Vig­fús­son, fram­kvæmda­stjóri Um­bru, að ekki sé ó­vana­legt að bílar flakki á milli ráðu­neyta og ein­stök bif­reiða­kaup séu ekki eyrna­merkt á­kveðnu ráðu­neyti. Þannig þjónustar Benz-bíllinn nú Svan­dísi Svavars­dóttur heil­brigðis­ráð­herra. Audi-bif­reiðin var tekin á leigu þar til út­boði um þrjá raf­knúna ráð­herra­bíla lýkur síðar í þessum mánuði.

Spurður um á­stæður þess að Benz-jeppinn hafi staldrað svo stutt við og hvort það sé rétt að lítið pláss í far­angurs­rými sé á­stæðan, segir Viktor við Fréttablaðið:

„Á síðasta ári var keyptur inn einn raf­­­magns­­bíll til reynslu. Á­­stæða til­­­færslu var liður í prófunum á hvernig sá bíll hentar og gefa fleiri bíl­­stjórum og ráð­herrum kost á að reyna bílinn. Í út­­boði sem nú stendur yfir var síðan tekið mið af þeirri reynslu þegar tækni­­­legar kröfur voru mótaðar fyrir næstu inn­­kaup. Þá var horft til rýmis í bílnum auk tækni­­­legra þátta og öryggis­krafna í sam­ráði við Ríkis­lög­­reglu­­stjóra. Meðal annars voru gerðar auknar kröfur um rými og veg­hæð.“

Frétt Fréttablaðsins.