Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, og Ragnar Jónasson, rithöfundur, hafa saman gefið út bókina Reykjavík Glæpasaga. Ragnar er margreyndur rithöfundur en þetta er fyrsta bók Katrínar.
Katrín og Ragnar voru til viðtals í kvöldfréttum RÚV en þar var spurt Katrínu hvort það væri lítið að gera í forsætisráðuneytinu.
„Allir stjórnmálamenn hafi gott af því að hafa áhugamál. Þegar covid skall á var einmitt gott að hafa eitthvað sem kallaði á einveru,“ svaraði Katrín en hún segir þessi eina bók vera nóg í bili.
Katrín Jakobsdóttir fetar í fótspor Davíðs Oddssonar, fyrrum forsætisráðherra, en þau tvö eru þau einu sem hafa gegnt því embætti og gefið út skáldsögu á þeim tíma.
„Takk fyrir að minna á það. Ég held að það séu ekki margir forsætisráðherrarnir sem hafa setið lengur en eitt kjörtímabil en ætli þar ljúki ekki samanburðinum okkar Davíðs,“ sagði Katrín Jakobsdóttir.