Katrín Jakobs og Guðni Th. skipa nýja orðu­nefnd – Þetta er fólkið sem mun á­kveða hverjir fá fálka­orðuna

Í sam­ráði Katrínar Jakobs­dóttur for­sætis­ráð­herra og Guðna Th. Jóhannes­sonar, for­seta Ís­lands, hefur verið á­kveðið að skipa þau Drífu Hjartar­dóttur, fyrr­verandi al­þingis­mann, Sig­ríði Snævarr, fyrr­verandi sendi­herra, og Sigur­björn Árna Arn­gríms­son, skóla­meistara, í orðu­nefnd. Þetta kemur fram á vef stjórnarráðsins.

Skipunar­tími þriggja nefndar­manna, þeirra Guð­rúnar Nor­dal, for­stöðu­manns, Jóns Egils Egils­sonar, fyrr­verandi sendi­herra, og Svan­fríðar Jónas­dóttur, fyrr­verandi al­þingis­manns, rennur senn út.

Orðu­nefnd fer með mál­efni hinnar ís­lensku fálka­orðu og gerir til­lögur til for­seta Ís­lands um veitingu orðunnar.