Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra svaraði nokkrum vel völdum spurningum á Instagram-síðu sinni í morgun. Katrín var spurð út í málefni sem brenna á mörgum þessa dagana í bland við önnur léttvægari.
Ein spurning varðaði til dæmis nýju stjórnarskrána og hvað hefði orðið um hana. „Ég mun leggja fram frumvörp í haust um breytingar á stjórnarskrá og mjög mikið í þeim byggist á því sem unnið var hjá stjórnlagaráði kjörtímabilið 2009 til 2013.“
Katrín er mikil stuðningskona enska knattspyrnuliðsins Liverpool en aðspurð hvernig það kom til að hún byrjaði að halda með liðinu, sagði hún: „Mér fannst Liverpool vera í flottustu búningunum þegar ég var fimm ára og þeir voru með markmann sem hét Bruce Grobbelaar sem mér fannst ógeðslega fyndinn.“
Katrín fékk líka spurningu um hver væri fyndnastur í ríkisstjórninni. Hún svaraði spurningunni eins og sannur stjórnmálamaður og nefndi engin nöfn. Sagði að margir þar ættu góða spretti.
Þá var hún spurð hvaða bók allir ættu að lesa. Hún sagði erfitt að velja eina bók en sagði þó að allir ættu að lesa Góða dátann Svejk sem kom fyrst út árið 1923.