Katrín í sjokki á tjaldsvæðinu: „Eiga allir hjólhýsi nema ég?“

Katrín Atladóttir, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, segist hafa verið í hálfgerðu áfalli eftir að hafa heimsótt tjaldsvæði aðgengilegt hjólhýsum á dögunum. Katrín hafði ekki farið á slíkt tjaldsvæði í tvö ár og virðist mikið vatn hafa runnið til sjávar hjá Íslendingum síðan þá.

Katrín segir á Twitter:

„Fór í fyrsta skipti á tjaldsvæði aðgengilegt hjólhýsum síðan 2019 og var í sjokki. Eiga allir hjólhýsi nema ég?“

Sala á hjólhýsum hefur tekið verulegan kipp undanfarin misseri, en líklega má rekja auknar vinsældir þeirra til kórónuveirufaraldursins. Íslendingar deyja nefnilega ekki ráðalausir þegar þeir komast ekki til útlanda. Katrín bætir við færslu sína og segir:

„Sko smá í sjokki yfir ekki bara hvað þau eru mörg heldur hvað þau taka mikið pláss og þessir skikar sem fólk merkir sér í kringum þau.“

Margir virðast taka undir þetta sjónarmið Katrínar um að hjólhýsi séu orðin full algeng á tjaldsvæðum. „Er í sama pakka. Líður alltaf eins og ég sé í stórhættu í næfurþunnu tjaldi innan um öll þessi farartæki,“ segir einn.

Una Sighvatsdóttir, fyrrverandi fjölmiðlakona og sérfræðingur hjá embætti forseta Íslands, blandar sér einnig í umræðuna og segir:

„Mér leið eins og ég hefði tjaldað á Manhattan, miðað við hvernig hjól-háhýsin gnæfðu yfir litla tjaldið mitt einu sinni, á svæði sem var autt þegar ég setti upp tjald en var orðið fullt af þessum ferlíkjum morguninn eftir.“