Katrín forviða: „Algjört hneyksli. Þetta getur orðið heimsfrétt“

Katrín Baldursdóttir, sem skipar fyrsta sætið á lista Sósíalistaflokksins í Reykjavík suður, er allt annað en sátt við vinnubrögð Sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu.

Katrín deilir frétt Vísis frá því í hádeginu þar sem greint var frá því að kjósandi, sem ætlaði að kjósa utan kjörfundar hjá embættinu á dögunum, hafi fengið þær upplýsingar að framboð Sósíalista hafi ekki verið skráð.

Gunnar Smári Egilsson, stofnandi Sósíalistaflokksins, gerir nánari grein fyrir þessu á Facebook-síðu framboðsins:

„Til okkar leitaði kjósandi sem sagði eftirfarandi: „Við hjónin ætluðum að kjósa utan kjörfundar hjá Sýslumanninum í Kópavogi, þar var okkur sagt að það væri ekki kominn bókstafur fyrir Sósíalistaflokkinn.“ og bætti við: „Okkur var sagt að það væri ekki skráð og hún sýndi okkur blað með öllum bókstöfunum og þar stóð neðst að J væri fyrir Sósíalistaflokk Íslands og hún sagði að það væri gamalt og ekki gilt.“

Tekið skal fram að í frétt Vísis er haft eftir Sigríði Kristinsdóttur, sýslumanni á höfuðborgarsvæðinu, að misskilningur hafi orðið á milli starfsmanns embættisins og umrædds kjósanda. Starfsmaður embættisins kannist ekki við að hafa gefið þær upplýsingar að skráning Sósíalistaflokksins væri ekki gild.

Gunnar Smári segir að kjósendum sé afhentur listi yfir listabókstafi þar sem flokkarnir á þingi eru efst.

„En síðan er sagt að Sósíalistar hafi fengið úthlutað listabókstaf. Sósíalistaflokkurinn er því hafður í einhverri annari deild, fyrir neðan hina flokkana, þótt framboð hans sé á engan hátt öðruvísi en hinna. Enginn flokkur hefur skilað inn sínum listum og því er ekkert öðruvísi við framboð Sósíalista en hinna flokkanna og fráleitt að bera það fram með einhverjum fyrirvara fyrir kjósendur. Þessi aðgreining bíður upp á allskyns misskilning eða túlkun, sem kjósendurnir eru vísa til. Það er grundvallaratriði í frjálsum kosningum að allir valkostir séu bornir fram á jafnræðisgrundvelli. Dómsmálaráðuneyti Áslaugar Örnu Sigbjörnsdóttir hefur ekki gætt að því,“ segir hann.

Katrín tekur í svipaðan streng og veltir fyrir sér hversu margir aðrir skyldu hafa fengið svipaðar upplýsingar og viðkomandi kjósandi lýsir.

„Hver stendur á bak við þetta? Þetta þýðir í raun að utankjörfundaatkvæðagreiðslan fram að þessu er ógild. Og að framvegis verði ÖSE( Öryggis- og samvinnustofnun Evrópu) að hafa eftirlit með utankjörfundaatkvæðagreiðslunni og aðal kosningunum 25.sept. Og ofan á þetta hefur Kristín Edwald lögfræðingur verið útnefnd sem formaður Landskjörstjórnar, en hún var formaður Yfirkjörstjórnar í nýlegu prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Rvík og las upp úrslitin í Valhöll. Algjört hneyksli. Þetta getur orðið heimsfrétt,“ segir hún.