Katrín Baldursdóttir, fyrrverandi oddviti Sósíalistaflokksins í Reykjavík suður, segir að ferilskrá Kristrúnar Frostadóttur myndi passa vel við manneskju sem ætlaði sér að verða formaður Sjálfstæðisflokksins eða Viðreisnar.
Eins og greint var frá síðastliðinn föstudag hefur Kristrún ákveðið að gefa kost á sér sem formaður Samfylkingarinnar og telja flestir að leiðin fyrir hana í formannsstólinn sé nokkuð greið. Dagur B. Eggertsson borgarstjóri sagði í síðustu viku að hann myndi ekki gefa kost á sér en nöfn þeirra tveggja höfðu verið áberandi í umræðunni eftir að Logi Einarsson sagðist myndi láta af formennsku í haust.
„Eftirfarandi ferilskrá myndi passa vel við manneskju sem ætlaði sér að verða formaður Sjálfstæðisflokksins eða Viðreisnar en hljómar skelfilega fyrir manneskju sem vill verða formaður vinstri flokks sem kennir sig við jöfnuð, eða Samfylkingarinnar,“ segir Katrín í Facebook-hópi Sósíalistaflokksins.
Bendir hún á að Kristrún hafi til dæmis unnið í fjármálakerfinu sem aðalhagfræðingur Kviku banka, hagfræðingur viðskiptaráðs og unnið fyrir greiningardeild fjárfestingarbankans Morgan Stanley í New York og Lundúnum.
Ekki eru allir sammála því að það sé neikvætt að ferilskrá Kristrúnar sé í fjármálakerfinu og þessi reynsla hennar sé styrkur en ekki löstur.
„Þarf þessi ferill endilega að vinna gegn henni ef hjartað er á réttum stað og brennur fyrir fólkið í landinu. Getur ekki alveg eins verið að þessi ferill vinni með henni af því gefnu að hún sé í raun sönn jafnaðarmanneskja?,“ spyr til dæmis. Annar bætir við:
„Ég þekki Kristrúnu Frostadóttur ekki, en held að hún sé samkvæm sjálfri sér. Hef trú á að hún eigi eftir að gera góða hluti.“