Össur Skarphéðinsson, fyrrverandi formaður Samfylkingarinnar utanríkisráðherra gagnrýnir Katrínu Jakobsdóttur forsætisráðherra harðlega á Facebook-síðu sinni. Össur segir það hafa verið mikil mistök hjá Katrínu og Bjarna að hafa ekki samráð við minnihlutann um aðgerðir til að verjast kórónaveirunni. Þá hrósar Össur starfsfólki í heilbrigðiskerfinu en Katrín fær á baukinn. Össur segir:
„Dagur B. Eggertsson, hafði samráð við minnihlutann um aðgerðir til viðnáms við COVID-19 og tók inn prýðilegar tillögur Eyþórs&co. Samstaðan í borgarstjórn var til fyrirmyndar og myndin af þeim saman falleg. Katrín Jakobsdóttir hafði hins vegar ekki fyrir því að taka stjórnarandstöðuna á Alþingi inn í undirbúning sinna aðgerða nema til málamyndakynningar í lokin. Hvenær – ef ekki á svona tímum?“
Þá segir Össur enn fremur:
„Ég er ekki viss um að þetta sé vel fallið til að efla þá samstöðu sem þjóðin þarf nú á að halda.“