Katrín ekki lengur á toppnum: Þetta er sá stjórnmálaleiðtogi sem Íslendingar treysta best

Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra og formaður Vinstri grænna, hefur í gegnum tíðina verið sá stjórnmálaleiðtogi sem Íslendingar treysta best. Sú er ekki staðan lengur samkvæmt nýrri könnun Prósents.

Kristrún Frostadóttir, formaður Samfylkingarinnar, er samkvæmt könnuninni sá stjórnmálaleiðtogi sem Íslendingar treysta best. Fréttablaðið fjallar um þetta í dag.

Af þeim formönnum stjórnmálaflokkanna treysta 25,4 prósent Kristrúnu best af þeim sem tóku afstöðu. Að sama skapi mældist Katrín með 17,5% þegar spurt var: Hvaða formanni íslenskra stjórnmálaflokka treystir þú best? Bjarni Benediktsson, fjármálaráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins, er þriðji með 15,4%.

11,3 prósent lands­manna treysta Sigurði Inga Jóhanns­syni, for­manni Fram­sóknar­flokksins, best. Þar á eftir kemur Þor­gerður Katrín Gunnars­dóttir, for­maður Við­reisnar, með 9,7 prósent, Hall­dóra Mogensen, þing­flokks­for­maður Pírata, með 8,9 prósent, Inga Sæ­land, for­maður Flokks fólksins, með 7 prósent og Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, for­maður Mið­flokksins, rekur lestina með 4,6 prósent.

Fyrir utan yfir­gnæfandi stuðning innan Sam­fylkingarinnar nýtur Krist­rún tölu­verðs stuðnings úr öðrum flokkum. Til að mynda treysta 53 prósent kjós­enda Sósíal­ista­flokksins henni best, 23 prósent Við­reisnar­fólks, 16 prósent Pírata og 11 prósent Fram­sóknar­manna.

Nánar er fjallað um könnunina á vef Fréttablaðsins.