„Atvinnulausir eru nefnilega ekki aumingjar þó stjórnvöld beri enga virðingu fyrir þeim eins og fram kemur í launaumslaginu. Og öryrkjar fá sömu meðferð.“
Þetta segir Katrín Baldursdóttir, stjórnmálafræðingur og pistlahöfundur. Katrín gerir grein Stefáns Ólafssonar, prófessors við Háskóla Íslands, á vef Kjarnans að umtalsefni á Facebook en í grein sinni reynir Stefán að færa rök fyrir því að atvinnuleysisbætur hér á landi séu allt of lágar.
Atvinnuleysi hefur aukist mjög undanfarnar vikur í kjölfar COVID-19 faraldursins og gæti staðan hjá mörgum versnað þegar hefðbundinn uppsagnarfrestur rennur út.
„Þegar líður á sumarið og uppsagnafrestir líða út og þau sem þá verða enn atvinnulaus klára rétt til 70% af fyrri heildarlaunum (3 fyrstu mánuðirnir) þá falla þau á flötu bæturnar sem eru tæpar 290 þúsund krónur á mánuði,“ segir Stefán í grein sinni og bendir á að þetta þýði 30% kjaraskerðingu hjá láglaunafólki sem er með 400 þúsund krónur á mánuði.
„Atvinnuleysisbótakerfið ætti að verja slíkt fólk mun betur en nú er,“ segir Stefán og undir þetta tekur Katrín.
„Eru menn atvinnulausir af því þeir eru aumingjar? Nei hreint ekki. Þó eru þeir meðhöndlaðir eins og úrhrök. Það er hent í þá einhverri upphæð sem þeir geta ekki lifað af, eða um 290 þúsund krónum á mánuði. Það stefnir því í að fátækum fjölgi gríðarlega á Íslandi í kreppunni vegna veirunnar. En alveg óháð veiru þá er það alls ekki svo að menn hafi orðið atvinnulausir vegna þess að þeir stóðu sig ekki í vinnu. Slík tilfelli heyra til algjörra undantekninga,“ segir Katrín og bætir við að oft hafi þeir sem missa vinnuna lagt mikið í starfið en samt fái það hrikalega meðferð við uppsögn.
„Stefán Ólafsson bendir hér á í hvert stefnir og hvernig lífsafkoma þeirra atvinnulausu lítur út. Hann bendir á það augljósa að það verður að hækka atvinnuleysisbæturnar svo allt stefni ekki í óefni. Þó fyrr hefði verið. Atvinnulausir eru nefnilega ekki aumingjar þó stjórnvöld beri enga virðingu fyrir þeim eins og fram kemur í launaumslaginu. Og öryrkjar fá sömu meðferð.“