Katrín átti að borga skuldina á skírdag: Fimm dögum seinna barst henni bréf – „Algjörlega siðlaust“

„Aðgangsharka auðvaldsins að venjulegu fólki er svívirðileg. Það er ekkert gefið eftir. Löglegt en siðlaust,“ segir Katrín Baldursdóttir, félagi í Sósíalistaflokki Íslands.

Katrín segir farir sínar ekki sléttar eftir að hafa fengið innheimtuviðvörun inn um lúguna í gærmorgun. Hún birtir mynd af bréfinu í Facebook-hópi Sósíalistaflokksins og bendir á að eindagi reikningsins hafi verið á skírdag, þann 1. apríl síðastliðinn.

„Strax 6. apríl sendir þetta fyrirtæki, Íslensk Orkumiðlun, mér bréf þess efnis að ég þurfi að greiða skuldina 1.258 kr plús 673 krónur í innheimtukostnað og ef ég borgi ekki innan 10 daga fari skuldin í innheimtu til Motus.“

Katrín segir að reyndar hafi hún verið búin að borga reikninginn en það breyti því ekki að það sé „viðbjóðslegt“ hvernig svona fyrirtæki gengur að fólki. Hún bætir við innan sviga að umrætt fyrirtæki græði á auðlindinni okkar eða orkunni.

Hún fer svo nánar yfir þetta í nokkrum liðum:

  1. Aðeins líða fimm dagar fá eindaga þegar fyrirtækið sendir hótunarbréf með innheimtukostnaði sem í þessu tilfelli er meira en helmingur af skuldinni.
  2. Strax er hótað að skuldin verði send til Motus
  3. Ekki var minnt á skuldina áður en innheimtukostnaður er lagður á og hörðum innheimtuaðgerðum hótað.
  4. Ekki er boðið upp á að semja um greiðsluna ef fólk getur ekki borgað strax.
  5. Innheimtustjórinn sem ég talaði við sagði þetta löglegt.
  6. En þetta hlýtur að teljast algjörlega siðlaust.

Katrín tekur fram að samkvæmt innheimtustjóranum hefði hún ekki átt að fá bréfið, enda var hún búin að borga reikninginn, og bað hann hana afsökunar á því.

„Ég benti honum þá á hvort honum fyndist þetta í alvörunni siðleg framkoma við fólk. Hann maldaði í móinn. Við skulum athuga að fyrirtækin í landinu hafa fengið alls konar stuðning vegna Covid en almenningur engan, nema kannski að draga að borga afborganir af lánum, en auðvitað með fullum vöxtum svo það er engin gjöf. En svo geta fyrirtæki sýnt svona lítilsvirðandi og siðlausa framkomu gagnvart fólki sem kannski er í verulegum fjárhagsvanda.“