Katrín Atla er komin með nóg af vinnu­hópum: „Ung­menni í Laugar­dal þurfa al­vöru að­stöðu“

Katrín Atla­dóttir, borgar­full­trúi Sjálf­stæðis­flokksins, er komin með nóg af vinnu­hópum og krefst að­gerða strax til að bæta að­stöðu fyrir í­þrótta­iðkun í Laugar­dalnum.

„Þátt­taka barna og ung­linga í skipu­lögðu í­þrótta­starfi hefur ó­tví­rætt for­varnar­gildi og að sama skapi stuðlar það að heil­brigðara líferni og betri lýð­heilsu. Það hafa ís­lenskar rann­sóknir sýnt fram á. En því miður er það svo í sumum hverfum borgarinnar að að­staða til í­þrótta­iðkunar er lakari en í öðrum hverfum,“ skrifar Katrín í pistli í Frétta­blaðinu í dag.

„Í meiri­hluta­sátt­mála borgar­stjórnar er talað um að „greina þurfi þörf fyrir að­stöðu fyrir börn og ung­linga í Laugar­dal“. Það þarf enga sér­fræðinga til að greina þessa þörf, það væri auð­velt að spyrja bara for­eldra í hverfinu. Tveir grunn­skólar í Laugar­dal eru án í­þrótta­húss og aðrir tveir eru með of lítil og ó­heppi­leg hús. Í­þrótta­fé­lögin í Laugar­dal, Ár­mann og Þróttur, eiga ekkert hús fyrir bolta­greinar innan­húss.“

Hún bendir á að hjá Ár­manni er fjöl­mennasta körfu­bolta­deild Reykja­víkur og þar æfa fjögur hundruð börn.

„Þau yngstu æfa í í­þrótta­húsum Lang­holts- og Laugar­nes­skóla, þau eru á stærð við einn bad­min­ton­völl. Þessi börn spila mörg í fyrsta skipti á tvær körfur þegar þau taka þátt í mótum. Ár­mann getur ekki haldið mót til fjár­öflunar eins og önnur fé­lög í borginni vegna að­stöðu­leysis. Skóla­í­þrótta­húsunum er lokað í sumar­byrjun líkt og skólunum svo tíma­bilið hjá Ár­manns­krökkum er styttra en hjá börnum í öðrum fé­lögum. Brott­fall er mikið þegar börnin vaxa upp úr þessari að­stöðu og þurfa þá að ferðast til æfinga utan hverfis.“

„Að­stöðu­leysi Þróttar er líka al­var­legt en blak­deild Þróttar æfir á tíu stöðum á höfuð­borgar­svæðinu og erfið­lega hefur gengið að halda úti starfi í hand­bolta. Ein­hver kann að spyrja af hverju Laugar­dals­höll sé ekki notuð. Barna- og ung­linga­starf þarf alltaf að víkja þar fyrir öðrum tekju­myndandi við­burðum, sem er í sjálfu sér eðli­legt, en sýnir að ó­mögu­legt er að halda úti fag­legu starfi þegar allt að helmingur æfinga­daga í mánuði fellur niður.“

„Í­þrótta­hús sem nýtist Þrótti, Ár­manni og skólunum í hverfinu skoraði einna hæst í for­gangs­röðun í­þrótta­mann­virkja í Reykja­vík. Vinnu­hópur allra hag­aðila á að skila til­lögum að upp­byggingu í Laugar­dal fyrir 1. desember,“ bætir Katrín.

„Það eru sjö mánuðir eftir af kjör­tíma­bilinu og lítið á­þreifan­legt hefur gerst í að­stöðu­vanda Laug­dælinga. Ung­menni í Laugar­dal þurfa al­vöru að­stöðu, ekki fleiri vinnu­hópa eða góðar hug­myndir á blaði,“ skrifar Katrín að lokum.