Katrín: Af hverju er aldrei boðið upp á til­boð fyrir einn?

„Mér finnst þetta hrein­lega vera spurning um jafn­rétti,“ segir Katrín Björg­vins­dóttir í býsnaá­huga­verðum pistli sem hún skrifaði fyrir vefinn Lifðu núna og birtist í gær. Lifðu núna er vefur sem hefur það mark­mið að gera líf og störf lands­manna sem komnir eru yfir miðjan aldur sýni­legri.

Í pistlinum veltir Katrín fyrir sér hvers vegna nær aldrei er boðið upp á til­boð fyrir einn. Hún tekur fram að það sé mjög á­nægju­legt að sjá til­boð sem streyma inn frá hótelum og gisti­húsum um allt land þar sem slegist er um við­skipta­vininn. En öll til­boðin miðist við tvo, pör eða fjöl­skyldur.

„Það er fullt af fólki sem er eitt á báti og gæti hugsað sér að brjóta upp til­veruna og gera sér glaðan dag með því að stökkva á eitt slíkt – vinir, vin­konur gætu slegið til án þess að vilja deila her­bergi, eða bara fara einn/ein með sjálfum sér,“ segir Katrín í pistlinum og bætir við að ferða­skrif­stofur hafi lengi boðið til­boð þar sem verð miðast við að fleiri en einn ferðist saman.

„Sama á við um flest það sem er í boði fyrir jól og páska, en þar gætu hótel og gisti­hús komið sterk inn því margir eru einir heima á þeim tíma en vildu gjarnan breyta til.“

Katrín bendir rétti­lega á að sumum finnist erfitt að fara einir, til dæmis í leik­hús eða út að borða en hún trúir því að ef höfðað yrði betur til þeirra með þjónustu gæti það orðið til þess að fólk drifi sig af stað. „Það yrði jafn “eðli­legt” og að 2 eða fleiri færu saman út,“ segir hún í pistlinum. Hún skorar að lokum á hótel- og gistihúsaeigendur að setja saman pakka fyrir alla, hvort sem fólk er eitt eða með öðrum. „Ég spái því að þeim verði tekið fagnandi,“ segir Katrín.

Hér má lesa pistil Katrínar í heild sinni.