Karli var sagt að borga annars fengi hann ekki að koma aftur til landsins

Karl Garðarsson, fyrrverandi þingmaður og fréttamaður til margra ára, rifjar það upp á Facebook-síðu sinni að fyrir nokkrum árum hafi hann fengið bréf frá lögreglunni á Nýja-Sjálandi.

Karl hafði ekið of hratt á ferðalagi sínu um landið og náði hraðamyndavél mynd af broti hans. Sektin var upp á fimmtán þúsund krónur og segir Karl að bréfinu hafi fylgt þau skilaboð að ef hann borgaði ekki gæti hann gleymt því að heimsækja þetta fallega land aftur.

„Ég dáðist af þrautseigju þeirra að hafa upp á heimilisfangi mínu og senda mér rukkun í bréfsformi heiminn á enda og borgaði auðvitað sektina, enda þótti mér það slæmur kostur að geta ekki heimsótt NZ aftur.“

Karl segir að þetta hafi rifjast upp fyrir honum þegar lesið er um þann vandræðagang sem einkennir oft Íslendinga þegar kemur að innheimtu sekta eða gjalda fyrir veitta þjónustu.

„Þannig virðist innheimta sekta vegna brota á sóttkví vera í skötulíki, það þykir sjálfsagt að skattgreiðendur borgi fyrir rekstur sóttkvíarhótela, en ekki þeir sem nýta sér þjónustuna, heilbrigðisstofnanir sitja uppi með tugmilljóna reikninga fyrir veitta þjónustu sem aldrei var greitt fyrir og svona má lengi telja. Ekki má heldur gleyma hraðasektunum.“

Karl segist að lokum ekki mæla sérstaklega með hörku lögreglunnar á Nýja-Sjálandi, en hugsanlega megi þó finna einhvern milliveg.