Karli lýst ekki á stöðuna í Úkraínu: „Þetta er bein hótun um kjarnorkustríð“

Karli Garðarssyni, fyrrverandi þingmanni Framsóknarflokksins, lýst ekki á stöðuna í Úkraínu. Eins og greint var frá í morgun fyrirskipaði Vladimír Pútín Rússlandsforseti innrás í landið í nótt og hafa sprengingar heyrst víða um Úkraínu í morgun.

„Árið er 2022. Hundruð eða þúsundir Úkraínumanna létu lífið í nótt þegar stærsta kjarnorkuveldi heims gerði árásir á 40 milljón manna þjóð í Evrópu. Loftárásir voru gerðar á Kiev, Kharkiv, Odessa og aðrar borgir Úkraínu. Í morgunsárið var svo ráðist inn í landið landleiðina frá Hvíta Rússlandi, auk þess sem Rússar eru komnir inn í Odessa,“ segir Karl í færslu á Facebook-síðu sinni.

Hann vísar svo í ræðu Pútíns í nótt þar sem hann sagði að hver sá sem reyni að standa í vegi fyrir innrásinni muni sæta meiri og verri afleiðingum en nokkru sinni í sögunni.

„Þetta er bein hótun um kjarnorkustríð. Leiðtogar vesturveldanna munu áfram ræða um refsiaðgerðir í allan dag. Pútin segir réttilega að þær muni ekki hafa nein áhrif. Þeir hafi fyrir löngu verið búnir að kortleggja þær. Sjötíu prósent af öllum útflutningi Rússa fer þess utan til Kína og annarra Asíulanda, orka þar með talin. Ekki til Vesturlanda. Er von til þess að vestrænir stjórnmálamenn standi í lappirnar í þessu máli? Stutta svarið er nei. En það verða margar flottar ræður fluttar í dag.“